|
Íþróttafélagið NES Bloggsíða hjá flottasta íþróttafélaginu í bænum. ÁFRAM NES!!! |
|
07.05.2012 20:38Í NES er nóg um að vera ....Jæja sæl veriði kæru NES-arar og vinir Eitthvað höfum við verið löt að setja inn fréttir hingað á þetta blogg okkar, afsakið það!! Við erum mun DUGLEGRI að setja inn fréttir á facebook, svo vonandi hefur þetta ekki haft nein svakaleg áhrif. Þangað til næst ......ÁFRAM NES :) 18.04.2012 11:16ÓtitlaðAÐALFUNDUR NES VERÐUR 15 MAÍ NÆSTKOMANDI. Tímasetning og staðsetning koma síðar. ALLIR ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ KOMA Í STJÓRN NES ENDILEGA AÐ MÆTA. FULLT AF SKEMMTILEGUM VERKEFNUM FRAMUNDAN kv frá öllum NES-urum. 18.04.2012 09:17Æfingar og gallarÆfingar í dag og kvöld :) Boccia yngri : 17:15 - 18:30 Boccía eldri : 18:30 - 20:15 Fótboltaæfing : 21:30 - 22:20 Enn minnum við alla á að muna að máta galla síðasti séns á æfingunum í dag áður en við pöntum. Endilega látið berast ef ekki allir hafa séð eða vita af þessu :) 13.04.2012 08:46Mátun á nýja gallanum.Kæru iðkendur og aðstanendur. Eins og þið sjáið erum við að fara í nýjan galla og boli fyrir NES. Henson ætlar að vera okkur innan handar með galla og boli að þessu sinni. Þá er líka betra að bæta inn annað hvort heilum galla eða panta aukalega buxur, peysu eða bol. Við getum sagt með stolti að VERÐIÐ MUN KOMA ÖLLUM Á ÓVART þar sem við erum búnar að vera duglegar að ná okkur í styrktaraðila. Alla næstu viku eða vikuna 16 - 20 apríl munum við verða með galla og boli til mátunar á öllum æfingum og tökum niður pantanir í leiðinni. Eins og þið sjáið þá stendur til boða fyrir aðstanendur og aðra velunnara að festa kaup á flottum bolum og sýna þannig stuðning er við erum á mótum að horfa á okkar iðkendur úr NES. Endilega látið berast svo allir okkar iðkendur frá 6 ára og upp úr fá nýjan galla. kv stjórnin. 12.04.2012 07:58Viljið þið koma einhverju til stjórnar ?Góðan daginn. Í kvöld er fundur hjá stjórn NES og langar okkur að athuga hvort það sé eitthvað sem þið viljið að við tölum um á fundinum. Margt er framundan svo sem nýjir gallar, mót, fjáraflanir,aðalfundur og lokahóf. Endilega sendið okkur póst á nes.stjorn@gmail.com eða í innboxið á Facebook ef eitthvað er sem þið viljið að við tökum á eða bætum. kv Stjórnin. 10.04.2012 11:28Æfingar byrja 11.aprílSæl öll. Æfingar byrja 11.apríl á miðvikudaginn. Engin sundæfing eða Garpasund í dag þriðjudag. Sjáumst hress og kát. 30.03.2012 14:02Íslandsmót ÍF.Fjörið hefst með frjálsum í dag![]() Íslandsmót ÍF í borðtennis, boccia, lyftingum, sundi, frjálsum og bogfimi hefst í dag. Við hefjum leik á frjálsum kl. 17:00 í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Hér að neðan fer tímaseðill helgarinnar. Dagskrá Íslandsmóts ÍF 30. mars - 1. apríl 2012 Reykjavík Keppnisgreinar: Boccia, sund, lyftingar, borðtennis, bogfimi og frjálsíþróttir Boccia: Laugardalshöll Sund: Laugardalslaug Lyftingar: Laugardalshöll/ bíósalur Borðtennis: ÍFR húsið Bogfimi: Frjálsíþróttahöll Frjálsíþróttir: Frjálsíþróttahöll Tímaskrá: Frjálsíþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal Föstudagur 30. mars: Upphitun 16:30 - keppni hefst kl. 17:00 Boccia - Laugardalshöll Laugardagur 31. mars: 09:00-18:00 (9:30 fararstjórafundur, 10:00 mótssetning, 10:30 keppni í boccia hefst). Sunnudagur 1. apríl: 09:00-14:00 Sund - Laugardalslaug Laugardagur 31. mars: Upphitun kl. 14:00 - keppni 15:00 Sunnudagur 1. apríl: Upphitun kl. 09:00 - keppni 10:00 Lyftingar - Laugardalshöll/bíósalur Laugardagur 31. mars: Vigtun kl. 12:00 - keppni kl. 14:00 Borðtennis - ÍFR húsið í Hátúni Laugardagur 31. mars: Keppni hefst kl. 11:30. Bogfimi - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal Laugardagur 31. mars: Keppni hefst kl. 11:00 Sunnudagur 1. apríl: Keppni hefst kl. 10:00 19.03.2012 07:46Æfingar mánudaginn 19.marsHæ hæ Æfingar í dag mánudaginn 19.mars: Frjálsar yngri kl 17:15 - 18:15 Frjálsar eldri kl 18:15 - 19:15 Sund eldri Sunnubraut kl 19:00 - 20:00 Sjáumst hress og kát :) Flettingar í dag: 94 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 111 Gestir í gær: 49 Samtals flettingar: 14073 Samtals gestir: 4746 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:37:50 |
clockhere Eldra efni NES ER FRÁBÆRT ÍÞRÓTTAFÉLAG Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: SuðurnesUm: LOTTONÚMERIÐ OKKAR ER 234. EF ÞIÐ VILJIÐ STYRKJA OKKUR ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ OKKUR Á NETFANGIÐ OKKAR.Tenglar
|